32 km
Suðurland
Hjólað inn að Vondugili þaðan upp Brennisteinsöldu. Hjólað áfram að Stórahver og þaðan niður dalinn í átt að Háöldu. Áður en komið er að Háöldu fer leiðin lengra til vesturs og upp lítinn dal alveg upp að Hraftinnuskeri. Laugavegurinn hjólaður til baka frá Hrafntinnuskeri niður í Landmannalaugar. 32km með 1200m í hækkun.
29 km
Suðurland
Landmannalaugar Suðurnámur - Háalda - Skalli. Frábær leið með mögnuðu útsýni. Smá göngu bras að komast upp á Suðurnámur og Háöldu en eftir það bara algjör draumur að hjóla. Einnig er auðveldari leið að fara upp Brennisteinsöldu vestanmegin, ekki aðal gönguleiðina(Laugaveg).
28 km
Höfuðborgarsvæðið
Fellahringurinn er hjólaviðburður í Mosfellsbæ í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima. Þessi fjallahjólaskemmtun höfðar til breiðs hóps hjólara – bæði vanra og þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjallahjólreiðum.
15 km
Höfuðborgarsvæðið
Fellahringurinn er hjólaviðburður í Mosfellsbæ í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima. Þessi fjallahjólaskemmtun höfðar til breiðs hóps hjólara – bæði vanra og þeirra sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjallahjólreiðum.
22 km
Suðurland
Tjaldsvæðið Geysir, hjólað um Haukadalsskóg og upp á útsýnisstað yfir Geysis svæðið.
26 km
Suðurland
Tjaldsvæðið Hellishólar, hjólað um Tumastaðaskóg og að gönguleiðinni á Þríhyrning.
48 km
Vestfirðir
Vesturgatan er 48 km löng vinsæl, græn, tvöföld slóða (doubletrack) hjólaleið með fallegu útsýni, staðsett nærri Þingeyri. Þetta er fjallahjólaleið sem hægt er að hjóla í báðar áttir og hefur meðal erfiðleikagráðu hvað varðar líkamlegt álag, með 1.468 metra hækkun. Að meðaltali tekur það 3 klukkustundir og 9 mínútur að ljúka þessari leið.
26 km
Suðvesturland
Bara fyrir þá sem hafa gaman af smá brasi! Mjög stórgrýtt á toppnum og krefjandi að komast upp lokakaflann á Kerhólakamb og komast niður klettana á Þverfellshorni. Er betra að fara þetta seinna um sumarið þegar öll bleyta og frostið farið betur úr jarðveginum. Var full mjúkt (þungt) færi.
0 km
Hálendið
Við bjóðum upp á úrval ferða á raffjallahjólum hér í hjarta hálendisins. Kerlingarfjöll eru sannkölluð paradís fyrir ævintýragjarnt hjólreiðafólk og hér ætti hver sem er að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem þú vilt koma í skipulagða ferð eða halda í ævintýralegan leiðangur með leiðsögn. Þú getur meira að segja komið með þitt eigið hjól og haldið af stað á eigin vegum ef þú vilt stjórna ferðinni.
0 km
Norðvesturland
Á Blönduósi má finna sjö skemmtilegar hjólaleiðir eftir Maríu Ögn Guðmundsdóttur. Þessar leiðir liggja um fallegt og fjölbreytt landslag í nágrenni Blönduóss og henta bæði fyrir þá sem vilja styttri ferðir og þá sem leita að lengri og krefjandi ævintýrum. Vegalengdirnar eru frá 21 km upp í 151 km, svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Á Blönduósi er einnig gott úrval gistimöguleika, allt frá notalegum gistiheimilum til huggulegra sumarhúsa, sem gerir staðinn kjörinn fyrir hjólreiðaferð yfir helgi eða sem hluta af sumarfríinu. Hér er tilvalið að njóta náttúrunnar, skoða fallega sveitina og hjóla eftir vel skipulögðum leiðum.
28 km
Suðvesturland
Nesjavallahringur. Afturskiptir brotnaði þegar c.a. 10 km voru eftir í bílinn. Styttum keðjuna og festum hjólið í gír. Ekki mælt með að gera þetta nema í neyð. Getur skemmt út frá sér. Skemmtileg leið, nokkuð krefjandi. Virkilega fallegt útsýni á leiðinni. Leið er eftir Bjarna Antonsson.
35 km
Norðurland
Stórskemmtileg hliðarleið frá Víkurskarði til Grenivíkur. Allskonar úturdúrar. Að hluta meðfram fjallskilagirðingu. (Hefðbundin leið á vegi er 22 km)
0 km
Vestfirðir
Fjallahjólaleiðir á Ísafirði hafa verið byggðar áhugasömum hjólurum sem þráðu ekkert heitar en aðgengi að fjallahjólastígum í Ísafjarðarbæ.
22 km
Höfuðborgarsvæðið
Byrjar og endar fyrir framan Brikk í Hafnarfirði. Auðveldur og þægilegur hringur að hjóla.